Lely Center Ísland

Um okkur
Öflugur þjónustuaðili íslensks landbúnaðar
Við sérhæfum okkur í sölu á hátækni tækjum til landbúnaðarstarfa frá hollenska félaginu Lely. Við bjóðum mjaltaþjóna, flórgoða og fóðurkerfi sniðin að þörfum íslenskra bænda.
Hjá okkur starfa 5 sérþjálfaðir og þrautreyndir Lely þjónustumenn sem sinna viðskiptamönnum okkar 24 tíma á sólarhring, allt árið um kring.
Landbúnaðarlausnir
Valdar vörur
Herferðir og kynningar
Lely Juno
Nýttu þér lækkaða vexti upp á aðeins 1,99% fyrir Lely Juno til 1. mars 2024.

Þjónusta
Þjónustan sem við bjóðum upp á
Við bjóðum upp á nauðsynleg verkfæri til að hjálpa þér að leysa úr læðingi alla möguleika mjólkurbúsins þíns.
Heimsókn á Brúnastaði
Brúnastöðum, Selfossi
Við litum inn til bændanna á Brúnastöðum, Ágústs Inga Ketilssonar og Elínar Magnúsdóttur, þar sem verið er að klára uppsetningu og undirbúa gangsetningu á LELY A5 mjaltaþjóni, ásamt flórgoða af gerðinni Lely Collector 120 og 5.000 lítra Lely mjólkurtanki.
Vara notuð
A5 mjaltaþjónn | Lely Collector 120 | Mjólkurtankur

Ágúst sýndi okkur fjósið og sagði okkur að, eins og oft með stórar ákvarðanir og framkvæmdir, hafi það verið örlítið stressandi að taka skrefið, breyta fjósinu og koma fyrir mjaltaþjóninum, en eftir að ferlið hófst hafi þetta verið skemmtileg vegferð og mikil eftirvænting eftir því að gangsetja Lely mjaltaþjóninn.
Kýrnar eru í aðlögunarferli með því að ganga eingöngu í fóður og sumar eru mjög áhugasamar um nýju græjuna.
Aðspurður segist Ágúst hlakka mest til færri vinnustunda og þar með fleiri gæðastunda með fjölskyldunni og börnum. Hann hlakkar til að þurfa ekki að fara á slaginu 7 út í fjós að sinna vinnunni, heldur geta e.t.v. notið morgunstundanna með börnunum á meðan allir gera sig klára fyrir daginn. Hann sér líka fram á að geta sinnt mjaltastörfunum einn, en áður hafi þeir alltaf þurft að hjálpast tveir að, hann og pabbi hans, sem fær núna að slaka á og drekka kaffibollann sinn í rólegheitum.
Fyrirvari: Niðurstöður hafa ekki verið staðfestar af Lely eða óháðum aðila. Niðurstöður þínar geta verið mismunandi.
Fyrirvari: Niðurstöður hafa ekki verið staðfestar af Lely eða óháðum aðila. Niðurstöður þínar geta verið mismunandi.

Nýjustu fréttir
Öryggisblöð
157 skjöl
Consumables Sulphuric Acid 96%
- Nafn:
- Consumables Sulphuric Acid 96% (en)
- Skráarnafn:
- SULPHURIC_ACID_96_EN_-_Consumables_Sulphuric Acid 96%_Safety and Warranty Information_English (en).pdf
Consumables RECA Duo S
- Nafn:
- Consumables RECA Duo S (is)
- Skráarnafn:
- RECA-DUO-S_IS_A_Consumables_RECA Duo S_Safety and Warranty Information_Icelandic (is).pdf
Consumables RECA Duo S
- Nafn:
- Consumables RECA Duo S (en)
- Skráarnafn:
- RECA-DUO-S_EN_A_Consumables_RECA Duo S_Safety and Warranty Information_English (en).pdf
Consumables RECA Duo A
- Nafn:
- Consumables RECA Duo A (is)
- Skráarnafn:
- RECA-DUO-A_IS_A_Consumables_RECA Duo A_Safety and Warranty Information_Icelandic (is).pdf
Consumables RECA Duo A
- Nafn:
- Consumables RECA Duo A (en)
- Skráarnafn:
- RECA-DUO-A_EN_A_Consumables_RECA Duo A_Safety and Warranty Information_English (en).pdf
Hvernig getum við aðstoðað þig?
Ef þú hefur einhverjar spurningar um þjónustu okkar, viðhald, stuðning eða lausnir skaltu ekki hika við að hafa samband! Ráðgjafar okkar eru fúsir til að veita hæfan stuðning og leiðbeiningar í hagræðingarferli búsins.












